
SAM: Innvigtun ársins komin í 112,6 milljón lítra
18.10.2022
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 146,8 lítrar síðustu 12 mánuði (október 2021 – september 2022) og 126,8 milljón lítrar á próteingrunni. Það þýðir að salan á bæði prótein- og fitugrunni hefur aukist miðað við sambærilegt tímabil fyrir ári síðan. Alls jókst salan á fitugrunni um 0,6% síðustu 12 mánuði og á sama tíma jókst salan á próteingrunni um 2,5%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða var söluaukningin á fitugrunni 2,4% og 4,4% á próteingrunni. Miðað við september 2021 var salan á fitugrunni 0,8% meiri í ár og 3,8% meiri á próteingrunni.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman í samanburði við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 146,7 milljón lítra sem er 1,4% samdráttur frá sama tímabili fyrir ári síðan.
Heildarinnvigtunin í septembermánuði nam 11,6 milljónum lítra, sem er rúmlega 246 þúsund lítrum meira en í september 2021 og þar með aukning um 2,2%. Heildarinnvigtun fyrstu 9 mánuði ársins er 112,6 milljónir lítra samanborið við 114,7 milljón lítra árið 2021 og nemur mismunurinn 1,4%.