
SAM: Hálfs árs innvigtun komin í 76 milljónir lítra
22.07.2022
Samkvæmt nýjustu yfirlitum Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem ná yfir tímabilið frá byrjun júní í fyrra til lok júní í ár, heldur innvigtun mjólkur áfram að dragast saman. Innvigtun mjólkur fyrstu fimm mánuði þessa árs var 63 milljónir lítra en á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 64,5 milljónum lítra. Í lok júní mánaðar var innvigtun mjólkur komin í 76 milljónir lítra en á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 77,9 milljónum lítra. Munurinn í lok júní mánaðar nemur því alls 1,85 milljónum lítra sem er 2,4% minna framleiðsla í ár en í fyrra.
Í bæði maí og júní sl. var innvigtunin minni en í sömu mánuðum í fyrra. Munaði einungis um 0,3% á maí mánuði 2021 og 2022, en í júní mánuði nam innvigtunin 13,0 milljónum lítra á meðan hún var 13,4 milljónir lítra í júní 2021. Munar þar um 2,7%. Enn sem komið er, er janúarmánuður eini mánuður ársins þar sem innvigtun hefur verið meiri en árið áður og þá einungis um 46,5 þúsund lítra. Innvigtun síðustu 12 mánuði er nú í 146,9 milljónum lítra, sem er samdráttur um 1,2%.
Í yfirlitinu kemur einnig fram að sala á bæði fitu- og próteingrunni er farin að taka við sér en sala á fitugrunni hefur aukist um 2,7% frá fyrra ári þegar litið er til síðustu 3 mánaða en 1,9% ef litið er til júnímánaðar. Sala á próteingrunni hefur aukist um 4,4% á síðustu 3 mánuðum og 4,6% í júnímánuði. Alls nam fitusalan í lok júní 145,8 milljónum lítra sem er aukning á 12 mánaða tímabili um 1,1%. Sala á próteingrunni nam þá 125,4 milljónum lítra sem er aukning um 2,2% á 12 mánaða tímabili