
SAM: Framleiðsla síðustu 12 mánaða er 148,5 milljón lítrar
07.12.2021
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 143,7 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (nóvember 2020 – október 2021) og 122,6 milljónir lítra á próteingrunni. Alls dróst salan á próteingrunni saman um 0,4% síðustu 12 mánuði en á sama tíma í fyrra mældist samdrátturinn 4% á 12 mánaða tímabili! Því má segja að hér sé eilítið verið að rétta úr kútnum, í þeim skilningi að hægst hefur á samdrættinum. Sala á fitugrunni jókst um 0,5% á sama tímabili. Sé horft til síðustu þriggja mánaða var söluaukning á próteingrunni um 1,1% og á fitugrunni um 0,9%.
Síðustu 12 mánuði hefur mjólkurframleiðslan verið nokkuð undir innvigtun mánuðanna 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 148,5 milljónum lítra, sem er 2,5% samdráttur frá sama tímabili fyrir ári síðan. Alls nam innvigtun mjólkur í október 10,9 milljónum lítra, sem er 2,6% minni framleiðsla en í október í fyrra þegar hún var 11,2 milljónir lítra. Innvigtun mjólkur frá ársbyrjun er nú komin í 125,7 milljónir lítra, en sé sama tímabil skoðað fyrir árið í fyrra nam innvigtunin þá 128,3 milljónum lítra. Framleiðslan til þessa í ár er 2,6 milljónum lítrum minni en á sama tíma í fyrra og nemur þessi munur 2,1%.