
SAM: Framleiðsla ársins á pari við fyrra ár
14.12.2020
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 144,5 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (desember 2019 – nóvember 2020) og 121,4 milljónir lítra á próteingrunni. Það þýðir að salan er enn að dragast saman miðað við sambærilegt tímabil fyrir ári síðan. Alls dróst salan á próteingrunni saman um 4% síðustu 12 mánuði og salan á fitugrunni um 1,2%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam sölusamdrátturinn 2,9% á próteingrunni og um 0,6% á fitugrunni.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan verið nánast á pari fyrir sambærilegt tímabil og mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 151,7 milljónum lítra sem er 0,3% aukning frá sama tímabili fyrir ári síðan. Alls nam innvigtun mjólkur í nóvember 10,9 milljónum lítra, sem er 6,1% minni framleiðsla en í nóvember í fyrra þegar hún var 11,6 milljónir lítra. Innvigtun mjólkur frá ársbyrjun er nú komin í 139,3 milljónir lítra, en sé sama tímabil skoðað fyrir árið í fyrra nam innvigtunin þá 139,4 milljónum lítra. Framleiðslan til þessa í ár er 150 þúsund lítrum minni en á sama tíma í fyrra og nemur þessi munur ekki nema 0,1%.