
SAM: 6,3% minni innvigtun en í janúar í fyrra
19.02.2021
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 142,1 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (febrúar 2020 – janúar 2021) og 121,8 milljónir lítra á próteingrunni. Það þýðir að salan á próteingrunni heldur áfram að dragast saman miðað við sambærilegt tímabil fyrir ári síðan. Alls dróst salan á próteingrunni saman um 4,1% síðustu 12 mánuði, en á sama tíma dróst salan á fitugrunni saman um 1,9%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam sölusamdrátturinn 4,2% á próteingrunni og fitusalan um 2,1%.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman í samanburði við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 150,4 milljónum lítra sem er 1,3% samdráttur frá sama tímabili fyrir ári síðan. Árið byrjar svo með töluvert minni framleiðslu miðað við sama mánuð í fyrra og nam heildar innvigtunin í janúar ekki nema 12 milljónum lítra, sem er rúmlega 800 þúsund lítrum minna en í janúar árið 2020 og svarar þessi munur til 6,3%.
/MG