
SAM: 3,9% meiri innvigtun en í janúar í fyrra
26.02.2020
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 147 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (febrúar 2019 – janúar 2020) og 126 milljónir lítra á próteingrunni. Það þýðir að salan á próteingrunni heldur áfram að dragast saman miðað við sambærilegt tímabil fyrir ári síðan. Alls dróst salan á próteingrunni saman um 2,4% síðustu 12 mánuði, en á sama tíma jókst salan á fitugrunni um 1,2%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam sölusamdrátturinn 0,2% á próteingrunni en fitusalan jókst um 1,6%.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan aukist í samanburði við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 152,3 milljónum lítra sem er 0,56% aukning frá sama tímabili fyrir ári síðan. Árið byrjar því með töluvert meiri framleiðslu miðað við sama mánuð í fyrra og nam heildar innvigtunin í janúar 12,8 milljónum lítra, sem er rúmlega 480 þúsund lítrum meira en í janúar árið 2019 og því aukning um 3,9%.