
SAM: 2,7% minni innvigtun fyrstu 7 mánuði ársins miðað við 2020
20.09.2021
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun ágúst í fyrra til lok júlí í ár, var innvigtun mjólkur fyrstu sjö mánuði þessa árs 91 milljón lítra en á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 93,5 milljónum lítra. Munurinn nemur alls 2,5 milljónum lítra eða 2,7%.
Innvigtun hvers mánaðar á þessu ári hefur verið nokkuð undir mánaðarlegri innvigtun árið 2020 en af fyrstu 7 mánuðum ársins hefur innvigtun einungis verið meiri í apríl en árið áður. Í júlí nam innvigtunin 13,1 milljón lítrum en í fyrra nam hún 13,2 milljón lítrum. Munurinn er 0,9%.
Í yfirlitinu kemur einnig fram að sala á fitugrunni sl. 12 mánuði nam 143,4 milljónum lítra sem er lækkun á 12 mánaða tímabili um 0,36%. Sala á próteingrunni sl. 12 mánuði stendur í 122,3 milljónum lítra sem er samdráttur um 1,89% á 12 mánaða tímabili. Munurinn á sölu á prótein- og fitugrunni er því nú 21,1 milljón lítra.