Beint í efni

SAM: 2,7% minni innvigtun fyrstu 5 mánuði ársins

22.06.2021

Samkvæmt nýju yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun júní í fyrra til lok maí í ár, var innvigtun mjólkur fyrstu fimm mánuði þessa árs 64,5 milljónir lítra en á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 66,3 milljónum lítra. Munurinn nemur alls tæpum 1,8 milljónum lítra eða 2,7%. Í maí nam innvigtunin 13,6 milljón lítrum en í fyrra nam hún 13,8 milljón lítrum. Munurinn er 1,9%.

Í yfirlitinu kemur einnig fram að sala á fitugrunni nam 142,1 milljónum lítra sem er lækkun á 12 mánaða tímabili um 2% en sala á fitugrunni á mánaðargrunni hefur verið undir því sem var áður undanfarið ár og má rekja það til áhrifa covid-faraldursins.

Áfram gengur ekki nógu vel með sölu á próteininu en þar hefur verið neikvæð söluþróun í þónokkurn tíma. Á 12 mánaða tímabili nam salan á próteingrunni ekki nema 121,4 milljónum lítra, sem er samdráttur um heil 3,7% á 12 mánaða tímabili. Munurinn á sölu á prótein- og fitugrunni stendur nú í 20,7 milljónum lítra og hefur dregist örlítið saman að undanförnu en í júlí í fyrra sem dæmi var munurinn kominn í 22,2 milljónir lítra.