
SAM: 2,5% meiri framleiðsla í mars 2023 en í mars 2022
12.04.2023
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 148,3 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (apríl 2022 – mars 2023) og 129,8 milljón lítra á próteingrunni. Salan á fitugrunni í mars á þessu ári er meiri en fyrir ári síðan (mars 2022) og munar þar á 4,4%. Próteinsalan er einnig meiri nú en fyrir ári ári síðan og munar þar á 4,6%. Sé litið til síðustu þriggja mánaða þá hefur bæði prótein- og fitusalan aukist, próteinsalan um 6,1% og fitusalan um 3,3%. Sömu sögu má segja sé litið til síðustu 12 mánaða. Aukningin í próteinsölu síðustu 12 mánuði var 4,7% og aukning í fitusölu var 2,4% miðað við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan aukist örlítið, eða um 0,8% miðað við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur síðastliðna 12 mánuði um 148,9 milljónum lítra.
Heildar innvigtunin í mars nam 13,4 milljónum lítra, sem er rúmlega 327 þúsund lítrum meira en í mars árið 2022 eða aukning um 2,5%. Innvigtun það sem af er ári 2023 er 37,57 milljónir lítra en á sama tímabili í fyrra var innvigtunin 36,63 milljónir lítra. Innvigtun fyrstu þrjá mánuði ársins hefur því aukist um 940 þúsund lítra eða um 0,6% samanborið við árið 2022.
