Beint í efni

SAM: 2,4% minni innvigtun en í apríl í fyrra

17.05.2021

Samkvæmt nýju yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun maí í fyrra til lok apríl í ár, var innvigtun mjólkur fyrstu fjóra mánuði þessa árs 50,1 milljón lítrar en á sama tíma í fyrra nam innvigtunin 52,4 milljónum lítra. Munurinn nemur alls 1,5 milljónum lítra eða 2,9% samdrætti. Innvigtun hvers mánaðar á þessu ári hefur verið nokkuð minni í samanburði við árið 2019 en af fyrstu 4 mánuðum ársins hefur innvigtun verið minni þrjá mánuði en árið áður og í 1 mánuði meiri. Í apríl nam innvigtunin 13,3 milljón lítrum en í fyrra nam hún 13,6 milljón lítrum. Munurinn er 2,4%. Innvigtun sl. 12 mánuði stendur í 149,7 milljónum lítrum, sem er samdráttur uppá 2,6%.

Í yfirlitinu kemur einnig fram að sala á fitugrunni nam 142 milljónum lítra sem er lækkun á 12 mánaða tímabili um 2,5%. Sala á fitugrunni byrjaði að dragast saman í júlí í fyrra. Enn gengur ekki nógu vel með sölu á próteininu en þar hefur verið neikvæð söluþróun í þónokkurn tíma. Á 12 mánaða tímabili nam salan á próteingrunni ekki nema 121,3 milljónum lítra, sem er samdráttur um heil 4,4% á 12 mánaða tímabili. Munurinn á sölu á prótein- og fitugrunni er því kominn í 20,7 milljónir lítra.