
SAM: 2,4% meiri innvigtun en í ágúst í fyrra
27.09.2021
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 144,1 milljón lítra síðustu 12 mánuði (september 2020 – ágúst 2021) og 123 milljónir lítra á próteingrunni. Sala á próteingrunni eykst um 7,8% m.v. ágúst árið 2020 en ef litið er til síðustu 12 mánanaða dróst salan á próteingrunni saman um 0,2%. Á sama tíma hefur sala á fitugrunni aukist um 1%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam söluaukning 5,4% á próteingrunni og á fitugrunni um 5,8%.
Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman miðað við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur sl. 12 mánuði 149 milljónum lítra sem er 2,8% samdráttur m.v. sama tímabil fyrir ári síðan. Ágústmánuður er einungis annar mánuður ársins þar sem innvigtun er meiri en í fyrra en í mars var 2,2% meiri innvigtun en árið áður. Innvigtun í ágústmánuði nam 12,4 milljónum lítra samanborið við 12,1 milljón lítra í ágúst í fyrra og nemur aukningin 2,4%. Innvigtun það sem af er ári 2021 er 103,4 milljón lítrar en á sama tímabili í fyrra var innvigtunin 105,6 milljónir lítra. Innvigtun fyrstu 8 mánuði ársins hefur því dregist saman um 2,1% frá fyrra ári.