Beint í efni

SAM: 1,7% meiri innvigtun en í ágúst 2021

03.10.2022

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 146,6 milljón lítra síðustu 12 mánuði (september 2021 – ágúst 2022) og 126,4 milljónir lítra á próteingrunni. Sala á próteingrunni eykst um 8,5% m.v. ágúst árið 2021 en ef litið er til síðustu 12 mánaða jókst salan á próteingrunni um 2,3%. Á sama tíma jókst sala á fitugrunni um 0,9% en sé salan í ágúst 2022 borin saman við söluna í ágúst 2021, þá jókst salan um 7,2%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam söluaukning 4,7% á próteingrunni og á fitugrunni um 2,8%.

Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman miðað við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur sl. 12 mánuði 146,5 milljónum lítra sem er 1,7% samdráttur m.v. sama tímabil fyrir ári síðan. Ágústmánuður er einungis annar mánuður ársins þar sem innvigtun er meiri en í fyrra en í janúar var 0,4% meiri innvigtun en árið áður. Innvigtun í ágústmánuði nam 12,6 milljónum lítra samanborið við 12,4 milljón lítra í ágúst í fyrra og nemur aukningin 1,7%. Innvigtun það sem af er ári 2022 er 101 milljón lítrar en á sama tímabili í fyrra var innvigtunin 103,4 milljónir lítra. Innvigtun fyrstu 8 mánuði ársins hefur því dregist saman um 1,6% frá fyrra ári.