
SAM: 148,8 milljón lítra mjólkurframleiðsla árið 2021
24.01.2022
Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) nam heildarinnvigtun ársins 2021 um 148,8 milljónum lítra. Heildarinnvigtun ársins á undan, 2020, nam 151,2 milljónum lítra sem þýðir að heildarinnvigtun mjólkur hefur dregist saman um 1,6% eða 2,4 milljón lítra á milli ára.
Þetta ætti því miður ekki að koma á óvart þar sem samdráttur hefur verið í framleiðslu alla mánuði ársins að undanskildum mars, ágúst og nóvember. Í desember 2021 nam innvigtun mjólkur 11,8 milljónum lítra sem er 1% minni framleiðsla en í desember 2020.
Sala ársins 2021 á fitugrunni var 144,3 milljónir lítra sem er aukning um 1,1% frá því árinu áður. Sala mjólkur á próteingrunni jókst einnig á milli ára og endaði í 123,6 milljónum lítra, sem er aukning um 0,9% frá 2020. Þetta verður að teljast sem ágætis árangur þegar litið er til ástandsins á markaði vegna Covid-19 og jákvætt er að sjá að salan virðist aðeins vera að rétta úr sér.
Sé litið til síðustu þriggja mánuði ársins 2021 varð 1,6% aukning í sölu á próteingrunni á meðan samdráttur varð í sölu á fitugrunni um 0,6%. Samanburður á desember mánuði milli áranna 2021 og 2020 gefur okkur að sala á próteingrunni var 2,3% meiri í desember 2021 samanborið við árið á undan en sala á fitugrunni var aftur á móti 5,5% minni árið 2021 samanborið við árið á undan.
Til fróðleiks og samanburðar má hér sjá helstu lykiltölur mjólkurframleiðslu og -sölu síðan 2005:
Ár | Innvigtun mjólkur (millj. lítra) | Sala á próteingrunni (millj. lítra) | Sala fitugrunni (millj. lítra) |
2021 | 148,8 | 123,6 | 144,3 |
2020 | 151,2 | 122,5 | 142,8 |
2019 | 151,8 | 126,2 | 147 |
2018 | 152,4 | 129,5 | 144,8 |
2017 | 151,1 | 132,3 | 144,1 |
2016 | 150,2 | 129 | 139,2 |
2015 | 146 | 122,6 | 132,8 |
2014 | 133,5 | 121,2 | 129 |
2013 | 122,9 | 117,6 | 120,8 |
2012 | 125,1 | 115,5 | 114,1 |
2011 | 124,8 | 113,7 | 111,5 |
2010 | 123,2 | 114,7 | 110,7 |
2009 | 125,6 | 117,7 | 115,6 |
2008 | 126,1 | 117,1 | 112,3 |
2007 | 124,8 | 114,9 | 108,9 |
2006 | 117,1 | 113,2 | 103,9 |
2005 | 109,5 | 112,3 | 100,8 |