Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

SAM: 12 mánaða framleiðsla komin í 153,1 milljón lítra

21.10.2020

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 145,1 milljón lítrar síðustu 12 mánuði (október 2019 – september 2020) og 122,5 milljónir lítra á próteingrunni. Það þýðir að salan á bæði prótein- og fitugrunni hefur dregist saman miðað við sambærilegt tímabil fyrir ári síðan. Alls dróst salan á próteingrunni saman um 3,4% síðustu 12 mánuði, og á sama tíma dróst salan á fitugrunni saman um 0,1%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða nam sölusamdrátturinn 5,5% á próteingrunni og  3,6% á fitugrunni. Salan jókst þó miðað við september í fyrra um 1,7% á próteingrunni og 3,1% á fitugrunni.

Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan aukist í samanburði við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur 153,1 milljón lítra sem er 1,9% aukning frá sama tímabili fyrir ári síðan. Nam heildar innvigtunin í september 11,5 milljónum lítra, sem er rúmlega 180 þúsund lítrum minna en í september árið 2019 og því samdráttur um 1,6%.