Beint í efni

SAM: 0,8% minni innvigtun en í febrúar í fyrra

16.03.2022

Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) var sala á fitugrunni 146,0 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (mars 2021 – febrúar 2022) og 124,4 milljón lítra á próteingrunni. Sala á próteingrunni eykst um 2,4% m.v. febrúar árið 2021 en ef litið er til síðustu 12 mánaða jókst salan á próteingrunni um 2,2%. Á sama tíma jókst salan á fitugrunni einnig um 2,2%. Sé horft til síðustu þriggja mánaða hefur sala á fitugrunni dregist saman um 1,2% á meðan sala á próteingrunni hefur aukist um 1,4%.

Á sama tíma, þ.e. síðustu 12 mánuði, hefur mjólkurframleiðslan dregist saman miðað við sambærilegt tímabil mánuðina 12 þar á undan. Þannig nam innvigtun mjólkur síðustu 12 mánuði alls 148,6 milljónum lítra sem er 2,1% samdráttur m.v. sama tímabil fyrir ári síðan. Janúar skilaði meiri framleiðslu miðað við sama mánuð árið 2021 en framleiðslan í febrúarmánuði er 2,1% minni en í febrúarmánuði árið 2021. Alls var framleiðslan 11,5 milljónir lítra í febrúar. Innvigtun það sem af er ári 2022 er 23,5 milljón lítrar en á sama tímabili í fyrra var innvigtunin 23,7 milljónir lítra. Innvigtun fyrstu 2 mánaða ársins hefur því dregist saman um 0,8 % frá fyrra ári.                                                                                                                                                          

/GBE