Salmonella og E.coli finnst ekki í nautgripum hér á landi
12.05.2011
Á tímabilinu janúar 2010 til janúar 2011 tók Matvælastofnun 845 sýni á 169 nautgripabúum í 7 héraðsdýralæknaumdæmum. Tilgangur sýnatökunnar var að kanna hvort greina mætti salmonellu eða E. coli 0157:H7 í sýnunum. Tilraunstöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum rannsakaði sýnin. Öll sýnin reyndust neikvæð m.t.t. salmonellu og E. coli 0157:H7. Þetta eru góðar niðurstöður m.t.t. E. coli O157:H7 og er sýkillinn líklega ekki til staðar í íslenskum nautgripum. Þetta afbrigði E. coli bakteríunnar hefur aldrei greinst í nautgripum eða afurðum úr þeim hér á landi svo vitað sé. Það er sömuleiðis jákvætt að Salmonella hafi ekki greinst í sýnunum.
Af rannsókninni má draga þá ályktun að litlar líkur séu á að E. coli O157:H7 og Salmonella berist í fólk með íslenskum nautgripaafurðum. Þó er mikilvægt að mati MAST sofna ekki á verðinum og æskilegt er að fylgst sé með afurðum með reglubundnum sýnatökum.