
Salan gengur vel !
12.10.2016
Samkvæmt nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á fitugrunni 137,5 milljónir lítra síðustu 12 mánuði. Það er aukning frá fyrra ári um 4,1%. Síðustu þrjá mánuði (júlí-september 2016) nam söluaukningin 6,8% miðað við sama tímabil fyrir ári.
Sala á próteingrunni undanfarna 12 mánuði var 127,8 milljónir lítra, sem er aukning um 4,6% frá árinu á undan. Ef litið er til síðustu þriggja mánaða (júlí-september 2016) nam söluaukningin á próteingrunni 6,5%.
Innvegin mjólk undanfarna 12 mánuði var 151,8 milljónir lítra, sem er 6,9% aukning frá árinu á undan. Sé litið til síðasta mánaðar nam innvigtunin 11,3 milljónum lítra sem er samdráttur um 3,5% frá því í september í fyrra/SS.