Beint í efni

Sala nautgripakjöts dróst saman í febrúar

16.03.2011

Sala á nautakjöti í febrúar sl. var 270 tonn, sem er 10,6% minna en í sama mánuði í fyrra en þetta kemur fram í yfirliti frá Bændasamtökunum. Þar af nam sala á ungnautakjöti 146 tonnum, sem er 14,6% samdráttur m.v. sama mánuð á sl. ári. Þegar litið er til sölunnar undanfarna tólf mánuði, sést að hún hefur þrátt fyrir þetta aukist um 2,3% m.v. árið á undan. Alls var sala á nautgripakjöti á tímabilinu 3.843 tonn.

 

Þegar litið er til sölu annarra kjöttegunda sl. 12 mánuði, var sala á alifuglakjöti 7.087 tonn (-1,8%), lambakjöti 6.209 tonn (+0,2%), af svínakjöti seldust 6.025 tonn (-4,2%) og sala á hrossakjöti var 525 tonn (-17,9%). /SS