
Mikil söluaukning mjólkurvara árið 2016
21.01.2017
Samkvæmt nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á fitugrunni 139,2 milljónir lítra síðasta ár og er það er aukning frá fyrra ári um 4,8%. Síðustu þrjá mánuði (október-desember 2016) nam söluaukningin 4,7% miðað við sama tímabil fyrir ári!
Sala á próteingrunni árið 2016 var 129,0 milljónir lítra, sem er aukning um 5,2% frá árinu á undan. Ef litið er til síðustu þriggja mánaða nam söluaukningin á próteingrunni 4,2%.
Innvegin mjólk árið 2016 var 150,2 milljónir lítra, sem er 2,9% aukning frá árinu á undan. Sé hins vegar litið til síðustu þriggja mánaða ársins nam innvigtunin 34,3 milljónum lítra sem er samdráttur um 1,5 milljónir lítra miðað við sömu mánuði í fyrra eða sem nemur 4,2%/SS.