Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Sala mjólkurvara gefur ekkert eftir

15.12.2016

Samkvæmt nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á fitugrunni 138,4 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (desember 2015-nóvember 2016). Það er aukning frá fyrra ári um 3,7%. Síðustu þrjá mánuði (september-nóvember 2016) nam söluaukningin 6,8% miðað við sama tímabil fyrir ári!

Sala á próteingrunni undanfarna 12 mánuði var 128,9 milljónir lítra, sem er aukning um 5,5% frá árinu á undan. Ef litið er til síðustu þriggja mánaða nam söluaukningin á próteingrunni 6,6%.

Innvegin mjólk undanfarna 12 mánuði var 151,0 milljónir lítra, sem er 4,2% aukning frá árinu á undan. Sé hins vegar litið til síðustu þriggja mánaða nam innvigtunin 33,7 milljónum lítra sem er samdráttur um 1,2 milljónir lítra miðað við sömu mánuði í fyrra eða sem nemur 3,5%/SS.