Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Sala mjólkurvara á fullri ferð!

12.11.2016

Samkvæmt nýútkomnu yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var sala á fitugrunni 137,7 milljónir lítra síðustu 12 mánuði (nóvember 2015-október 2016). Það er aukning frá fyrra ári um 4,4%. Síðustu þrjá mánuði (ágúst-október 2016) nam söluaukningin 10,0% miðað við sama tímabil fyrir ári!

Sala á próteingrunni undanfarna 12 mánuði var 127,6 milljónir lítra, sem er aukning um 4,7% frá árinu á undan. Ef litið er til síðustu þriggja mánaða (ágúst-október 2016) nam söluaukningin á próteingrunni 6,6%.

Innvegin mjólk undanfarna 12 mánuði var 151,4 milljónir lítra, sem er 5,6% aukning frá árinu á undan. Sé litið til síðasta mánaðar nam innvigtunin 11,2 milljónum lítra sem er samdráttur um 4,0% frá því í oktober í fyrra/SS.