Sala á nautakjöti gengur vel
19.04.2012
Bændasamtökin hafa nú tekið saman nýjar framleiðslu- og sölutölur kjötgreina fyrir mars. Í samantektinni kemur fram að sala á nautakjöti var 1,8% meiri en hún var á sama tíma í fyrra og að ársfjórðungssalan hafi verið heilum 18,9% meiri. Þá er nú árssalan, þ.e. salan sl. 12 mánuði, enn yfir 4.000 tonnum en heildarsalan nemur 4.025 tonnum sem er aukning um 5,5% miðað við síðustu 12 mánuðina þar á undan.
Heildarframleiðsla nautgripakjöts sl. 12 mánuði var 4.019 tonn, en framleiðslan í mars var 340 tonn og nam sala nautgripakjöts í mánuðinum 341 tonni. Sé horft til sundurliðunar á sölu nautgripakjöts í mánuðinum var sem fyrr mest sala í ungnautakjöti eða 200 tonn og á 12 mánaða grunni nemur ungnautakjötssalan 2.302 tonnum eða 57,2% af heildarsölunni. Sala á kýrkjöti síðustu 12 mánuði var 1.459 tonn eða sem nemur 36,3% af heildarsölunni.
Sé litið til annarra kjöttegunda kemur í ljós að heildarsalan á landinu öllu hefur aukist sl. 12 mánuði um 2,2%. Mest er sem fyrr salan á alifuglakjöti eða 7.245 tonn (30,3%) og þar á eftir kemur lamba- og kindakjöt með 6.328 tonn eða 26,5% markaðshlutdeild/SS.