Rússar setja takmarkanir á útflutning á korni
08.11.2011
Undanfarnar vikur hefur verið mikill órói á heimsmarkaði með hrávöruviðskipti, m.a. með kornvörur. Margt hefur þó bent til hækkunar og til þess að sporna gegn innlendum hækkunum í Rússlandi hefur nú Vladimir Putin, forsætisráðherra landsins, gefið tilkynningu um að enn á ný yrðu settar á takmarkanir á útflutning á korni. Heildarmagn sem heimilt verður að flytja út í ár verða 25 milljónir tonna og fari útflutningurinn upp fyrir það hótaði hann fyrirtækjum á þeim markaði háum fjársektum.
Tilgangur þess að takmarka útflutninginn er klárlega að búa til stöðu offramboðs á innanlandsmarkaði með tilheyrandi líkum á verðfalli fyrir innlenda neytendur. Því miður má hinsvegar búast við því að heimsmarkaðsverð hækki eitthvað fyrir vikið vegna takmörkunar á framboði á þeim vettvangi/SS.