
RML auglýsir eftir nýjum þátttakendum í Loftlagsvænum landbúnaði
05.07.2023
RML auglýsir eftir nýjum þátttakendum í verkefnið Loftlagsvænn landbúnaður í nautgriparækt, sauðfjárrækt og útiræktun grænmetis.
Loftslagsvænn landbúnaður er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Markmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu.
Auglýst er eftir umsóknum til þátttöku frá tíu búum í sauðfjárrækt og/eða nautgriparækt og fimm grænmetisframleiðendum sem stunda útiræktun. Þátttakendur þurfa að hafa áhuga fyrir að setja sér skriflega aðgerðaáætlun fyrir búreksturinn, hrinda markmiðum í framkvæmd og vera virkir þátttakendur í vegferð landbúnaðarins að loftslagsvænum lausnum. Þátttakendur fá heildstæða ráðgjöf, fræðslu og aðhald frá RML, Landgræðslunni og Skógræktinni og auk þess þátttökustyrk, styrk til efnagreininga og þegar líður á verkefnið aðgerða- og árangurstengdar greiðslur.
Verkefnastjórn áskilur sér rétt til að velja þátttakendur, verði umsækjendur fleiri en fimmtán, en öll þátttökubú þurfa að uppfylla lögbundnar skýrsluhaldskröfur.
Verkefnið hefst í september/október 2023 og er umsóknarfrestur til 20. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Ósk Alfreðsdóttir verkefnastjóri, berglind@rml.is og í síma 516-5000.
