RM: breytt fyrirkomulag útsendingar á niðurstöðum mjólkursýna
12.04.2012
Svofelld tilkynning hefur borist frá Auðhumlu svf.:
Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðarins (RM) er um þessar mundir að taka í notkun nýjan tölvubúnað og við það tækifæri hafa verið ákveðnar eftirfarandi breytingar til að minnka útsendingu á pappír og með það að markmiði að mjólkurframleiðendur fái sem fyrst niðurstöður mælinga:
1. Kýrsýnaniðurstöður: Verða hér eftir sendar beint á tölvupóstfang viðkomandi framleiðanda úr tölvukerfi RM Í Excel formi. Fyrir þá sem ekki eru með Excel forrit uppsett á sinni tölvu, fylgir hlekkur með skeytinu, þar sem unnt er að hlaða niður Excel forriti til að skoða niðurstöðurnar. Þeir sem ekki eru með tölvunetföng munu fá sendar niðurstöður á pappír með mjólkurbílum.
2. Tanksýnaniðurstöður: Verða hér eftir sendar beint á tölvupóstfang viðkomandi framleiðanda úr afurðakerfi Auðhumlu. Þeir sem ekki eru með tölvunetföng munu fá sendar niðurstöður á pappír með mjólkurbílum.
3. Bændavefur: Mín síða er nú til fyrir alla framleiðendur sem leggja inn hjá Auðhumlu á heimsíðunni www.audhumla.is og eru framleiðendur hvattir til að notfæra sér þetta verkfæri sem sýnir fjölþættar upplýsingar um mjólkurinnlegg hvers framleiðanda, gæðaniðurstöður, verðmæti og fleira. Lykilorð eru tilgreind á hverjum afreikningi þannig að þau séu sem aðgengilegust. Í vinstra horni neðst á heimasíðu Auðhumlu er hnappurinn Bændavefur: og með því að smella á hann er hægt að skrá sig inn.
Þeir framleiðendur sem fá niðurstöður á pappír en eru með netföng eru beðnir að senda upplýsingar um netföng sín til Garðars Eiríkssonar, verkefnastjóra hjá Auðhumlu á gardare@audhumla.is. Beinn sími er 480-1606. Allar breytingar á netföngum má einnig senda á sama netfang.
Með ósk um gott samstarf,
Garðar Eiríksson, verkefnastjóri