Beint í efni

Rekstrarskilyrði landbúnaðarins til umfjöllunar á fundi með fjármálafyrirtækjum

27.04.2016

Bændasamtökin héldu nýlega kynningarfund um fjárfestingaþörf í landbúnaði og nýja búvörusamninga fyrir fulltrúa fjármálafyrirtækja, Byggðastofnunar og lífeyrissjóða.

Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, fór yfir þær breytingar sem nýir búvörusamningar fela í sér og einnig þau tækifæri sem í þeim liggja fyrir bændur. Jóhanna Lind Elíasdóttir og Runólfur Sigursveinsson, ráðgjafar hjá RML, fjölluðu síðan um rekstrarumhverfi landbúnaðarins almennt og undirliggjandi fjárfestingarþörf. Í máli þeirra kom fram að meðal stærstu verkefna fram undan er endurnýjun á framleiðsluþáttum og að auðvelda nýju fólki inngöngu í atvinnugreinina. Sindri sagði nýgerða búvörusamninga skapa ýmsa möguleika fyrir landbúnaðinn og gera bændum kleift að gera áætlanir til lengri tíma.

Á eftir erindum voru umræður þar sem gestirnir spurðu m.a. út í áhrif samninganna á rekstur bænda og afkomu.

Á fundinum voru alls 40 manns.




Sindri Sigurgeirsson.


Jóhanna Lind Elíasdóttir