Reiknivél vegna búvörusamninga
23.02.2016
RML hefur útbúið reiknivél fyrir bændur í excel þar sem unnt er að skoða áhrif nýrra búvörusamninga á tekjur búa sinna. Innsláttarreitir eru litamerktir og geta bændur fært inn greiðslumark, búfjárfjölda og aðrar nauðsynlegar upplýsingar. Neðar í skjalinu birtast niðurstöður þess bús sem slegið er inn hverju sinni. Vilji menn skoða annað hvort nautgriparækt eða sauðfjárrækt skal setja 0 í innsláttarreiti hinnar búgreinarinnar./JLE
Nánari upplýsingar á jle@rml.is.