Reglugerð um innflutning á erfðaefni holdanauta
25.09.2015
Í gær var ritað undir reglugerð um innflutning á erfðaefni holdanauta og útbúnað einangrunarstöðva. Reglugerðin byggir á breytingu á lögum um innflutning dýra, sem samþykkt var á Alþingi sl. sumar. Landssamband kúabænda lýsir ánægju með að reglugerðin skuli vera komin fram, hún er varða á langri leið til að efla nautakjötsframleiðslu hér á landi. Í reglugerðinni er gert ráð fyrir að fluttir verði inn fósturvísar og þeim komið fyrir í fósturmæðrum í einangrunarstöð. Kálfa sem vaxa upp af innfluttum fósturvísum, má síðan flytja úr einangrunarstöð þegar þeir ná 9 mánaða aldri, uppfylli þeir allar heilbrigðiskröfur. Það skal einnig áréttað, að sú leið sem Alþingi ákvað að farin skyldi í þessum efnum er seinfarin og gríðarlega kostnaðarsöm og verður því ekki farin án utanaðkomandi stuðnings við greinina./BHB
Reglugerð um innflutning á erfðaefni holdanautgripa og útbúnað einangrunarstöðva.