Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Reglugerð um flutning líflamba milli landsvæða

16.06.2008

Gefin hefur verið út reglugerð um flutning líflamba milli landsvæða. Hún fjallar um alla flutninga á líflömbum og kiðum yfir varnarlínur, vegna endurnýjunar bústofns vegna niðurskurðar af völdum sjúkdóma, búháttabreytinga og/eða kynbóta á fjárstofni bús.
Reglugerðina má nálgast á vef Matvælastofnunar undir "Lög og Reglur/Búfjárrækt".

Þeir sem hyggjast selja líflömb skulu sækja um það til Matvælastofnunar fyrir 1. júlí á sérstökum eyðublöðum, sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 1. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar.

Listi yfir þá sem fengið hafa leyfi til sölu á líflömbum verður birtur á heimasíðu MAST 1. ágúst.

Þeir sem hyggjast kaupa líflömb skulu sækja um það til Matvælastofnunar fyrir 15. ágúst á sérstökum eyðublöðum, sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 30. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar.

Tímasetningar fyrir umsóknir um kaup og sölu í ár eru tilgreindar í ákvæðum til bráðabirgða í reglugerðinni en tímasetningar fyrir næstu ár eru tilgreindar í 5. og 6. grein hennar.

Á vef Matvælastofnunar segir að það sé von hennar að þessar reglur verði til að einfalda ferli leyfisveitinga vegna kaupa og sölu á líflömbum. Þar sem reglugerðin kemur þetta seint út, er hætt við að bæði sauðfjárbændur og Matvælastofnun verði í kapphlaupi við tímann í sumar, en með góðri samvinnu ætti þetta að hafast að þeirra mati.

Matvælastofnun hvetur þá sem hyggjast sækja um að kynna sér reglugerðina vel fyrirfram.

/Matvælastofnun greindi frá.