Rándýr mjólk í Kína
02.10.2015
Fonterra í Nýja-Sjálandi hefur nú sett á markað nýja gerð mjólkur í Kína fyrir börn og unglinga en mjólkurgerð þessi inniheldur bæði meira magn af próteinum en hefðbundin mjólk sem og vítamín. Þá er hvorki í drykknum viðbættur sykur né önnur sætuefni. Þessi mjólk kallast Anchor Kids Golden Milk og er markmiðið að ná til efnameiri Kínverja með þessari nýju vöru.
Líkt og segir í titli fréttarinnar er um afar dýra mjólk að ræða en hver eining, sem inniheldur 12 190 millilítra fernur, kostar 2.770 krónur eða sem svarar til 1.215 krónur á líterinn!/SS.