Beint í efni

Ráðstefnan Hrossarækt 2010 – 20. nóvember

15.11.2010

Ráðstefnan Hrossarækt 2010 verður haldin á Hótel Sögu, laugardaginn 20. nóvember og hefst kl. 13:00. Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum. Ráðstefnustjóri er Víkingur Gunnarsson.


Dagskrá:
13:00   Setning - Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt


13:05   Hrossaræktarárið 2010 – Niðurstöður kynbótamats - Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ

13:30   Heiðursverðlaunahryssur 2010

13:45   Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins (aldursleiðrétt)

13:55   Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins


14:05   Erindi:
- H
reyfigreiningar á feti og tölti, Gunnar Reynisson, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri
-
Fóðurnýting og fóðurþarfir – er íslenski hesturinn einstakur? Sveinn Ragnarsson, Háskólanum á Hólum
-
Áhrif mismunandi gleiddar höfuðjárns á þyngdardreifingu hnakks, Einar Reynisson, meistaranemi í hestafræðum, LBHÍ, Hvanneyri

15:10   Tilnefningar og verðlaun fyrir ræktunarmann/menn ársins 2010     

15:30   Kaffihlé

16:00   Kynning á nýjum verðlaunagrip sem veittur verður á landsmótum til minningar um Þorkel Bjarnason, Sveinn Steinarsson, formaður Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

16:05   Umræður um erindin og ræktunarmál almennt

17:00   Ráðstefnuslit

/Fagráð í hrossarækt