Óttast skort á sænsku nautakjöti
05.01.2012
Nú fyrir áramótin losuðu margir sænskir kúabændur sig við naut í sláturhús þrátt fyrir að sum þeirra væru ekki orðin fullvaxta. Ástæðan var sú að nú um áramótin féllu niður slátrunarstyrkir en styrkirnir námu um 30 þúsund krónum pr. fall. Í kjölfarið óttast margir að skortur verði á sænsku nautakjöti þegar líður á árið og það muni því leiða til aukins innflutnings á nautakjöti frá löndum þar sem minni kröfur eru gerðar til dýravelferðar.
Framangreindum slátrunarstyrk hefur nú verið umbreytt í almenna greiðslu til búanna samkvæmt tilskipun frá Brussel og eru áhrif breytinganna á sænskan landbúnað augljós. Ekki virðist hvarfla að bændunum að standa í því að ala naut áfram, fyrst styrkirnir koma bara hvort sem framleitt er eða ekki. Kemur þessi ákvörðun bændanna trúlega fáum á óvart, ef frá er talið skrifstofufólk í höfuðborg Evrópusambandsins/SS.