Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Örfáir miðar eftir!

21.03.2016

Minnum á að árshátíð Landssambands kúabænda verður haldin um aðra helgi eða laugardaginn 2. apríl í Súlnasal Hótel Sögu og verður hún einstaklega glæsileg í tilefni 30 ára afmælis samtakanna. Þegar er ljóst að það stefnir í mikinn fjölda þátttakenda en það er þó enn hægt að ná sér miða og það fram á seinnipart miðvikudagsins.

 

Veislustjóri þessarar stórhátíðar verður enginn annar en sprelligosinn Magnús Sigurðsson frá Hnjúki. Hann mun einnig njóta liðsinnis þeirra Guðna Ágústssonar fv. landbúnaðarráðherra m.m. og uppistandarans Ara Eldjárn!

 

En þar sem LK á stórafmæli þá verður bætt um betur og boðið upp á bæði dans- og söngatriði auk skemmtilegs happdrættis. Árshátíðin hefst með fordrykk kl. 19 og stendur fram á rauða nótt en það verða Trukkarnir úr Austur-Húnavatnssýslu sem sjá um að halda uppi fjörinu!

 
Við hvetum alla, bæði kúabændur, ráðunauta, dýralækna, þjónustuaðila og aðra þá sem tengjast nautgriparækt með einum eða öðrum hætti að fjölmenna á afmælisárshátíðina. Verð aðeins 7.900 kr en miðapantanir eru gerðar í síma 460-4477/SS.