
Orðsending til garðyrkjubænda vegna beingreiðslna
13.01.2011
Ný reglugerð nr. 4/2011 um beingreiðslur í garðyrkju fyrir árið 2011 hefur tekið gildi. Þeir sem hafa hug á að þiggja beingreiðslur á árinu 2011 þurfa að skila inn umsókn og/eða áætlun til Bændasamtaka Íslands fyrir 15. janúar 2011 þar sem fram kemur flatarmál gróðurhúsa, sem ætlað er til framleiðslu fyrir hverja tegund svo og áætluð framleiðsla af hverri tegund á árinu 2011.
Framleiðendur sem hlotið hafa beingreiðslur á árinu 2010 skulu senda heildaruppgjör fyrir árið staðfest af löggiltum endurskoðanda til Bændasamtaka Íslands fyrir 10. febrúar 2011.
Umsóknarblöð og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Bændasamtaka Íslands (undir Félagsmál/Eyðublöð) eða hjá Ásdísi Kristinsdóttur (ak@bondi.is) eða í síma 563-0300.