Beint í efni

Orðsending til garðyrkjubænda

14.01.2010

Ný reglugerð nr. 1/2010 um beingreiðslur í garðyrkju fyrir árið 2010 hefur tekið gildi. Þeir sem hafa hug á að þiggja beingreiðslur á árinu 2010 þurfa að skila inn umsókn og/eða áætlun til Bændasamtaka Íslands fyrir 15. janúar 2010 þar sem fram kemur flatarmál gróðurhúsa, sem ætlað er til framleiðslu fyrir hverja tegund svo og áætluð framleiðsla af hverri tegund á árinu 2010.

Framleiðendur sem hlotið hafa beingreiðslur á árinu 2009 skulu senda heildaruppgjör fyrir árið staðfest af löggiltum endurskoðanda til Bændasamtaka Íslands fyrir 10. febrúar 2010.

Umsóknarblöð er að finna hér og nánari upplýsingar um nýja reglugerð eru hér, eða hjá Ásdísi Kristinsdóttur í síma 563-0300.