Opnun fjóss á Hvanneyri 6. ágúst
04.08.2004
Nýtt kennslu- og rannsóknafjós á Hvanneyri verður tekið í notkun föstudaginn 6. ágúst næstkomandi kl. 13.30 að landbúnaðarráðherra og fleiri góðum gestum viðstöddum. Með nýja fjósinu verður mikil breyting á allri kennslu- og rannsóknaaðstöðu í nautgriparækt við skólann.
Boðið verður upp á nútímalega aðstöðu fyrir gripi og fólk; kýr og uppeldi verður á legubásum, en kálfar í hálmstíum með sjálfvirkri mjólkurfóðrun. Kýrnar verða mjólkaðar í 2×6 mjaltabás, sem um leið mun þjóna sem kennsluaðstaða fyrir bændaefni og endurmenntunaraðstaða fyrir starfandi bændur.
Fjósið verður rúmgott og bjart og sérstaklega hefur verið hugað að móttöku hópa. Loftræsting verður náttúruleg, þannig að hvinur frá viftum mun ekki trufla kennslu eða leiðsögn.
Fjósið hefur verið lengi í undirbúningi eða allt frá árinu 1999 og framkvæmdir hófust síðan haustið 2002. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning og þar hefur ríkt góð samstaða LBH, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Bændasamtaka Íslands og Landssambands kúabænda. Aðalhönnuður fjóssins er Magnús Sigsteinsson hjá Byggingarþjónustu BÍ.