Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Skil á haustskýrslum fyrir 20. nóvember

18.11.2022

Opið er fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2022 hjá Matvælaráðuneytið í Bústofni. Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofn, eigi síðar en 20. nóvember.

Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu. Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum ásamt fyrningum og upplýsingum um aðra fóðuröflun og landstærðir.

Skila þarf haustskýrslu í Bústofn eigi síðar en 20. nóvember 2022. Skráning í Bústofn er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli