Opinn fundur í Hlíðarbæ um drög að nýjum jarðalögum
20.09.2011
Búnaðarsamband Eyjafjarðar stendur fyrir fundi þar sem kynnt verða drög að frumvörpum til laga um breytingar á jarðalögum, nr. 81/2004 og ábúðarlögum, nr. 80/2004 sem Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur látið vinna og eru nú til umsagnar.
Fundurinn verður haldinn í Hlíðarbæ, miðvikudaginn 21. september n.k. og hefst hann kl 14:15.
Fyrirlesarar á fundinum verða Elías Blöndal, lögfræðingur Bændasamtaka Íslands og Sigurbjartur Pálsson, stjórnarmaður Bændasamtaka Íslands.
Þeir munu kynna drögin og síðan verður opnað fyrir umræður.
Allir velkomnir.
Drög að nýjum jarða- og ábúðalögum.