Nýtt vefrit um meðferð sláturdýra og kjötgæði
23.09.2003
Komið er út nýtt vefrit um meðferð sláturdýra og kjötgæði á veraldarvefinn. Slóðin er: www.landbunadur.is/slaturdyr. Vefritið fjallar um meðferð dýra síðustu sólarhringana fyrir slátrun, um aðferðir og aflífun og einnig um meðferð kjöts. Markmið með útgáfu þessa vefrit er að bæta meðferð sláturdýra og kjöts og þar með auka velferð dýra og kjötgæði.
Ritinu er ætlað að upplýsa aðila sem vinna með sláturdýr um áhrif meðferðar á dýr og afurðir. Einnig er að finna upplýsingar um hvernig sé staðið að sýrustigsmælingum og kælingu kjöts. Efni vefritsins var unnið að sérfræðingum frá Embætti yfridýralæknis, LBH, Matra, RALA og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins, LBH, Matra, RALA, Rf og Yd styrktu gerð bæklingsins.