Beint í efni

Nýtt sætuefni frá Arla

13.07.2001

Arla, hið dansk-sænska mjólkursamlag hefur sett á markað nýtt sætuefni (gervisykur) sem unnið er úr mysu.

Undanfarin ár hefur verið unnið stíft að því að fá leyfi til að markaðssetja efni á Bandaríkjamarkaði og hefur það nú fengist. Væntingar bænda sem eiga Arla eru miklar til hins nýja sætuefnis, en ef vel tekst til er gert ráð fyrir að framleiðsla þess geti skilað tugum milljarða í veltu.