Nýtt kynbótamat í nautgriparækt væntanlegt á næstu dögum
18.09.2010
Vinnsla á kynbótamati í nautgriparækt er langt komin, er raunar lokið á öllum öðrum þáttum en endingarhlutanum. Sá hluti á einnig að liggja fyrir í næstu viku. Vinnuhópur fagráðs um ræktunarmál stefnir að því að funda um niðurstöðurnar í kringum næstu mánaðamót. Þá verður ákveðið hvaða naut úr árgangnum frá 2004 koma til notkunar sem reynd naut, a.m.k. hvað eldri hluta hans varðar. Úr honum komu 24 naut til afkvæmaprófana. Einnig ættu að koma í ljós vísbendingar um nautaárganginn frá 2005. Sá árgangur taldi 32 naut, sem er sá stærsti til þessa.