Nýtt kynbótamat í nautgriparækt
04.05.2012
Nýtt kynbótamat í nautgriparæktinni liggur nú fyrir og verður lagt fyrir fagráð á næstu dögum. Undirritaður sér um vinnslu á einkunn fyrir endingu kúnna og er þar helst til tíðinda, að niðurstöður fyrir þennan eiginleika eru heldur jákvæðar fyrir nautaárgangana 2005 og 2006, en fyrstu niðurstöður fyrir naut sem komu í heiminn 2007 eru heldur slakar. Þar er þó eingöngu um 9 naut að ræða og of snemmt að draga stórar ályktanir. Í töflunni hér að neðan má sjá þróun endingar íslensku kúnna á árabilinu 2001-2011. Kýr sem voru felldar á liðnu ári, 2011, höfðu að jafnaði verið í framleiðslu (tími frá fyrsta burði að förgun) í 963 daga, það er tvö ár, 7 mánuði og 19 daga. Kvígurnar eru að jafnaði 29,4 mánaða við fyrsta burð, sem þýðir að þær eru um fimm ára gamlar að jafnaði þegar þeim er fargað. Endingatíminn er því óþarflega stuttur en þó mjög svipaður og gengur og gerist í nágrannalöndunum./BHB
Förgunarár | Dagar í framleiðslu |
2001 | 1.114 |
2002 | 1.018 |
2003 | 975 |
2004 | 1.129 |
2005 | 1.047 |
2006 | 1.017 |
2007 | 968 |
2008 | 971 |
2009 | 1.003 |
2010 | 987 |
2011 | 963 |