Nýtt heimsmet í mjólkurduftframleiðslu
24.09.2013
Um þessar mundir kallar markaðurinn eftir mjólkurafurðum og er sér í lagi mikil eftirspurn eftir hefðbundnu mjólkurdufti. Fonterra í Nýja-Sjálandi er svo sannarlega að svara þessu kalli og hefur undanfarin þrjú ár lagt í mikla endurnýjun og breytingar á afurðastöð félagsins í Darfield fyrir nærri 45 milljarða íslenskra króna.
Nú, eftir framangreindar breytingar, hefur Fonterra yfir að ráða öflugustu mjólkurduftframleiðslu í heimi en dagleg framleiðslugeta í Darfield nemur 700 tonnum og það heimsmet! Til þess að setja þetta í samhengi má t.d. nefna að í hvern flutningagám komast 15 tonn af mjólkurdufti og nemur þessi framleiðsla því 45 flutningagámum á degi hverjum/SS.