
Nýtt app fyrir tilboð og uppskriftir á lambakjöti
04.07.2013
Með nýju íslensku snjallsímaforriti geta íslenskir neytendur nú fengið ábendingar um tilboðsverð á lambakjöti og uppástungur um uppskriftir sem henta fyrir kjötið. Fyrst um sinn verður þessi snjalla lausn í samstarfi við verslanir Krónunnar en gert er ráð fyrir að fleiri verslanir muni bætast í hópinn áður en langt um líður.
Hægt er að sækja appið fyrir Android-síma í Goggle Play store og í App store fyrir eigendur Iphone síma. Fyrir þá sem ekki nota snjallsíma er einnig hægt að skrá sig á vefnum lambakjot.is og fá þar sömu tilboð og uppskriftir og í snjallsímaforritinu. Notandinn fær þá SMS eða prentar út tilboðsmiða með strikamerki sem hann tekur með sér í verslun. Þeir sem sækja appið mega eiga von á því að fá ábendingar um tilboð í Krónunni í viku hverri.
Íslenskt lambakjöt ratar oft á grillið yfir sumartímann en með nýja forritinu geta lambelskir sælkerar tileinkað sér ýmsar nýjar og spennandi uppskriftir og aðferðir við matreiðsluna. Á vefnum lambakjot.is eru nú fyrirliggjandi mörg hundruð uppskriftir af ljúffengum réttum sem ættu að geta aukið fjölbreytnina í eldhúsum landsmanna.
Það er hægt að fá fínar skjámyndir hérna:
http://lambakjot.is/heim.aspx