Nyt kúa aldrei verið meiri hérlendis
28.01.2004
Bændasamtök Íslands hafa sett á vef sinn upplýsingar um nyt kúa samkvæmt skýrsluhaldi 2003. Meðalnyt árskýr í skýrsluhaldi reyndist vera 5.063 kg., en var 5.006 kg. árið 2002. Aukningin nemur +1,1%, sem er þó verulega minni aukning en verið hefur undanfarin ár (2000/2001 +5,1% og 2001/2002 +2,3%). Ástæður þessa má væntanlega fyrst og fremst rekja til orkuminna gróffóðurs sl. haust og samdráttar í framleiðslu vegna lækkunar heildargreiðslumarks landsins 2003/2004.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar úr skýrsluhaldinu 2003