Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Nýráðningar hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ehf.

21.12.2012

Búið er að ganga frá ráðningum í stjórnunarstöður hjá nýju ráðgjafarfyrirtæki bænda sem tekur formlega til starfa um áramótin. Fyrirtækið, sem mun heita „Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ehf.“, verður til eftir sameiningu leiðbeiningaþjónustu búnaðarsambandanna og ráðgjafarsviðs Bændasamtaka Íslands.

Eftirtaldir munu taka að sér stjórnunarstörf hjá fyrirtækinu:

Framkvæmdastjóri
Karvel Lindberg Karvelsson

Fagstjóri í búfjárrækt
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir

Fagstjóri í nytjaplöntum
Borgar P. Bragason

Fagstjóri í rekstri, hlunnindum og nýbúgreinum
Runólfur Sigursveinsson

Fjármálastjóri
Vignir Sigurðsson

Starfsmannastjóri
Berglind Ósk Óðinsdóttir

Verkefnisstjóri þróunar og samskipta
Helga Halldórsdóttir

Verkefnisstjóri þekkingaryfirfærslu og erlendra samskipta
Gunnar Guðmundsson

Í bréfi sem Eiríkur Blöndal, stjórnarformaður hins nýja félags, sendi starfsmönnum búnaðarsambanda og BÍ þakkaði hann þann mikla áhuga sem starfsmenn hafa sýnt nýja ráðgjafarfyrirtækinu, bæði með umsóknum, ábendingum og góðum hugmyndum.