
Nýr lögfræðingur Bændasamtakanna
08.04.2022
Hilmar Vilberg Gylfason hefur verið ráðinn nýr lögfræðingur Bændasamtakanna og tekur við af Guðrúnu Vöku Steingrímsdóttur sem hefur starfað hjá samtökunum síðastliðin sex ár. Hilmar er lögfræðingur að mennt auk þess að vera búfræðingur. Hilmar er boðinn velkominn til starfa um leið og Guðrúnu Vöku eru þökkuð góð störf í þágu bænda undanfarin ár.