Nýjung frá MS: Ostakubbar í pokum!
02.11.2011
Nú hefur enn ein vörunýjungin bæst við Gott í matinn matargerðarlínuna frá MS, ostakubbar í 200 g pokum, í pokanum er blanda af 26% gouda og maribo kubbum og eru þeir fáanlegir í öllum helstu verslunum landsins. Ostakubbar í pokum hafa verið fáanlegir víða í verslunum erlendis undanfarin ár og gaman að geta loksins boðið upp á þá hérlendis.
Það eru nánast engin takmörk fyrir möguleikum ostakubbanna, hægt er að nota þá út í salatið, í nestiboxið, á ostapinnann og út í heita rétti svo eð sé nefnt. Sniðugar tillögur að ostapinnum er að finna á umbúðunum sem ættu að aðstoða neytendur við að setja saman skemmtilegan ostabakka úr kubbunum. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Gott í matinn: www.gottimatinn.is /SS-fréttatilkynning.