
Ný stjórn Landssambands kúabænda
06.11.2020
Ný stjórn Landssambands kúabænda var kjörin á aðalfundi samtakanna sem stendur nú yfir.
Herdís Magna Gunnarsdóttir var kjörin formaður samtakanna. Meðstjórnendur eru Bessi Freyr Vésteinsson, Hofsstaðaseli, Rafn Bergsson, Hólmahjáleigu, Sigurbjörg Ottesen, Hjarðafelli og Vaka Sigurðardóttir, Dagverðareyri. Sigurbjörg og Vaka koma nýjar inn í stjórn. Jónatan Magnússon, Hóli, sem setið hefur í stjórn LK frá árinu 2019 gaf ekki áframhaldandi kost á sér.
Guðrún Eik Skúladóttir og Jón Elvar Gunnarsson voru kosin sem varamenn í stjórn.