
Ný stjórn Landssambands kúabænda
07.04.2018
Ný stjórn Landssambands kúabænda var kjörin á aðalfundi samtakanna sem stendur yfir á Hótel Selfossi um þessar mundir.
Arnar Árnason frá Hranastöðum var endurkjörinn formaður samtakanna með öllum gildum atkvæðum. Meðstjórnendur eru Bessi Freyr Vésteinsson, Hofsstaðaseli, Herdís Magna Gunnarsdóttir, Egilsstöðum, Rafn Bergsson, Hólmahjáleigu og Pétur Diðriksson, Helgavatni.
Borghildur Kristinsdóttir, Skarði, og Davíð Logi Jónsson, Egg, voru kosnir varamenn.